Veldu samskiptaleið: senda fyrirspurn, stofna þjónustubeiðni eða óska eftir símtali.
SL vinnur að kjörum og réttindum lögfræðinga. Kynntu þér starf félagsins, þjónustu við félagsfólk og kosti aðildar. Hér finnur þú einnig aðildarumsóknina.
Stéttarfélag lögfræðinga gerir kjarasamninga fyrir hönd síns félagsfólks. Einnig eru gerðir stofnana- og fyrirtækjasamningar og veitt ráðgjöf við gerð ráðningasamninga. Þannig fylgir stéttarfélagið því eftir að kjör og réttindi séu alltaf í takt við það besta sem völ er á.
Með aðild að félaginu opnast möguleikar á margvíslegum styrkjum. Þar skiptir þátttaka félagsins í BHM miklu máli. Sjúkra- og styrktarsjóðir veita fjölbreytta styrki og öflugt öryggisnet en starfsmenntasjóðirnir styðja við sí- og endurmenntun.
Stéttarfélag lögfræðinga veitir félagsfólki sínu aðgang án endurgjalds að alls kyns fræðslu, fyrirlestrum og námsefni sem jafnt getur nýst í leik og starfi. Oft er efnið rafrænt og hægt að lesa, horfa og hlusta við hentugleika.