Beint í efni

Hvað er BHM?

Bandalag háskólamanna var stofnað árið 1958 og er regnhlífarsamtök fag- og stéttarfélaga háskólamenntaðs fólks á íslenskum vinnumarkaði. Innan BHM eru nú 28 aðildarfélög með samtals um 16 þúsund félagsmenn sem starfa í ýmsum atvinnugreinum, bæði hjá hinu opinbera og á almennum markaði.

Hlutverk BHM er að:

  • Efla aðildarfélögin og stuðla að gagnkvæmum stuðningi og samstöðu milli þeirra.
  • Efla þekkingu félagsmanna á kjara- og réttindamálum.
  • Móta sameignlega stefnu félaganna í hagsmunamálum þeirra.
  • Semja um sameiginleg hagsmuna- og réttindamál skv. umboði.
  • Aðstoða félögin við gerð kjarasamninga.
  • Gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum og löggjafarvaldi.
  • Hafa frumkvæði að umræðu um háskólamenntun og stöðu háskólamenntaðra á vinnumarkaði.
  • Vinna reglulega greiningu á launaþróun á vinnumarkaði til undirbúnings kjaraviðræðna.
  • Eiga samstarf við systursamtök háskólamenntaðra og önnur sambærileg samtök erlendis.
  • Annast rekstur og umsýslu sameiginlegra sjóða aðildarfélaganna samkvæmt þjónustusamningum.