Beint í efni

Þjónusta félagsins

Hvaða þjónustu veitir skrifstofa félagsins?

Hjá Stéttarfélagi lögfræðinga fær félagsfólk ráðgjöf um kjör og réttindi í starfi. Hér finnur þú yfirlit yfir þjónustuna og leiðir til að hafa samband við skrifstofu SL.

Veldu samskiptaleið

Senda fyrirspurn — Fyrir almennar spurningar um félagið og þjónustuna.

Stofna þjónustubeiðni — Fyrir félagsfólk sem óskar eftir aðstoð vegna tiltekins máls í starfi.

Óska eftir símtali við sérfræðing — Ef þú vilt ræða erindið í síma getur þú sent inn ósk um símtal.

Þjónustuskrifstofa félagsins er til húsa í Borgartúni 27. Hún er opin alla virka daga frá kl. 9-15. Síminn er 415 1650.

Ef þú vilt sækja um aðild að félaginu er hægt að senda inn aðildarumsókn hér á vefnum.

Viltu taka þátt í félagsstarfinu? Á síðunni Um félagið finnur þú upplýsingar um stjórn og aðalfundi.

Túlkun kjarasamninga

Sérfræðingar á skrifstofunni aðstoða félagsfólk við eftirfylgni og túlkun kjarasamninga og geta svarað spurningum varðandi kjara- og réttindamál.

Algengar spurningar um kjarasamninga eru meðal annars:

  • Er ég að fá greitt samkvæmt réttum launataxta?
  • Hversu marga orlofs- eða veikindadaga á ég?
  • Hvernig er með veikindi á meðan ég er í orlofi?

Hagsmunagæsla

Skrifstofan aðstoðar við lausn ágreiningsmála sem varða framkvæmd og túlkun kjarasamninga. Þar með talið er aðstoð við útreikninga á launum og innheimtu ef þörf krefur.

Ef þess er óskað getur skrifstofa félagsins verið talsmaður einstakra félagsmanna gagnvart vinnuveitanda og veitt lögfræðilega ráðgjöf í málum sem falla undir starfssvið stéttarfélags.

Stuðningur við starfslok

Við uppsögn getur skrifstofan veitt ráðgjöf varðandi atriði sem snúa að framkvæmd uppsagnarinnar og uppgjöri vegna starfsloka, til dæmis varðandi áunnið orlof og innheimtu útistandandi launa.

Skrifstofa félagsins getur líka veitt félagsfólki fræðslu varðandi starfsleit og leiðbeint við skráningu atvinnuleysis.

Ráðningarsamningar og launaviðtöl

Sérfræðingar á skrifstofu veita ráðgjöf við gerð ráðningarsamninga og túlkun á þeim.

Skrifstofan veitir einnig fræðslu og stuðning varðandi undirbúning launaviðtala, enda skiptir miklu máli að félagsfólk mæti sem best undirbúið í launaviðtöl og geti vísað í gögn og samningstexta eftir því sem við á.

Önnur þjónusta og stuðningur

Upplýsingar um margvíslega aðra þjónustu sem félagið veitir má finna hér á vefnum, til dæmis upplýsingar um:

Fólkið á bak við þjónustu SL

Hér sérðu starfsfólk þjónustuskrifstofunnar Stéttar, sem sinnir þjónustu við félagsfólk SL. Þú getur sent fyrirspurn, stofnað þjónustubeiðni eða óskað eftir símtali með tenglunum hér að ofan.

Hjalti Einarsson
Anna Margrét Steingrímsdóttir
Halldór Valdimarsson
Karen Rúnarsdóttir