Beint í efni

Kostir aðildar að SL

Stéttarfélag með lögfræðinga í forgrunni

Kjör þín, ráðningarsamningur og réttindi í starfi eru viðfangsefni SL. Félagið gerir kjarasamninga fyrir hönd félagsfólks og er vettvangur lögfræðinga til að vinna að sameiginlegum hagsmunum. Hér getur þú kynnt þér þjónustuna og fundið næsta skref, hvort sem þú ert að hefja starfsferil eða stendur frammi fyrir breytingum í starfi.

Kjarasamningar

SL gerir kjarasamninga fyrir hönd félagsfólks og veitir leiðbeiningar um túlkun þeirra og gildissvið. Algengar spurningar snúa að launaröðun, launahækkunum, orlofi og veikindarétti.

Skoða kjarasamninga

Ráðningarsamningur og launaviðtal

Félagar geta leitað til okkar varðandi undirbúning starfsþróunar- og launaviðtala. Það er mikilvægt að undirbúa sig vel fyrir slík viðtöl, enda eru þau lykilþáttur í starfsþróun og starfsánægju.

Við getum líka veitt ráðgjöf við gerð ráðningarsamninga og aðstoðað okkar félaga við að tryggja að hagsmuna þeirra sé gætt.

Kynna mér þjónustu SL

Stuðningur vegna uppsagnar

Ef til uppsagnar kemur veitum við okkar félögum ráðgjöf varðandi réttindi þeirra og liðsinnum þeim við að leita réttar síns ef þess gerist þörf.

Stofna þjónustubeiðni

Sjóðir BHM og orlofskostir

Stéttarfélag lögfræðinga er aðili að BHM og félagar okkar geta sótt um ýmsa styrki úr sjóðum sem þjónustaðir eru af BHM:

  • Sjúkrasjóður – fyrir félagsmenn sem starfa á almennum vinnumarkaði.
  • Styrktarsjóður – fyrir félagsmenn sem starfa á opinberum vinnumarkaði.
  • Orlofssjóður – fyrir félagsmenn á opinberum og almennum vinnumarkaði.
  • Starfsmenntunarsjóður – fyrir félagsmenn á opinberum og almennum vinnumarkaði.
  • Starfsþróunarsetur háskólamanna – fyrir einstaklinga, stofnanir, stéttarfélög og samningsaðila.

Sótt er um alla ofangreinda styrki gegnum Mínar síður BHM

Þjónustuver BHM veitir félagsmönnum aðildarfélaga upplýsingar og aðstoð vegna umsókna um styrki úr sjóðum bandalagsins, umsókna um orlofskosti o.fl.

Hvernig er sótt um aðild?

Hér á vefnum er umsóknareyðublað fyrir aðild að SL, sem verðandi félagar geta fyllt út og sent okkur.

Ef þú hefur spurningar varðandi mögulega aðild, til dæmis hvort að þitt starf falli undir aðildarskilgreiningar félagsins er einfaldast að senda fyrirspurn eða óska eftir símtali.

Hvernig tek ég virkari þátt?

Viltu taka virkari þátt í félagsstarfinu? Á síðunni Um félagið finnur þú upplýsingar um aðalfundi og stjórn SL. Stjórnarmeðlimir geta veitt upplýsingar um leiðir til að gefa kost á sér í ábyrgðarstöður félagsins.