Beint í efni

Fyrir launagreiðendur

Stéttarfélag lögfræðinga leggur ríka áherslu á gott samstarf við launagreiðendur síns félagsfólks. Eftirfarandi eru nokkrar ábendingar um fyrirkomulag greiðslna og svör við dæmigerðum spurningum.

Félagsgjöld

Í félaginu eru félagsgjöld 0,75% af heildarlaunum félagsfólks á mánuði. Þau ber að draga mánaðarlega af launum og vinnuveitandi skilar þeim til stéttarfélags. Stéttarfélagsnr. Stéttarfélags lögfræðinga er 672.

Mótframlag launagreiðanda í sjóði

Athugið að mótframlag í sjóði reiknast alltaf af heildarlaunum nema annað sé tekið fram.

Iðgjaldaskil

Launagreiðendum ber að senda inn skilagreinar fyrir hvern launamánuð með sundurliðun á öllum iðgjöldum fyrir hvern launþega til BHM, merkt stéttarfélagi. Senda skal inn skilagreinar fyrir gjalddaga.

Gjalddagi er 15. dagur næsta mánaðar eftir launamánuð en eindagi er síðasti virki dagur gjalddaga-mánaðar.

Áríðandi er að rétt númer og heiti stéttarfélags komi fram á hverri skilagrein.

Kröfur stofnast í netbanka þegar skilagrein hefur borist, nema óskað hafi verið eftir öðrum greiðslumáta eða ef ávallt hefur verið millifært. Eigi greiðsla sér ekki stað fyrir eindaga eru reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.

Bókunar- og innheimtumiðstöð óskar eftir að fá allar skilagreinar sendar með rafrænum hætti.

Aðstoð þjónustuskrifstofu Stéttarfélags lögfræðinga

Ef einhverjum spurningum er ósvarað mælum við með því að senda okkur fyrirspurn sem við svörum við fyrsta tækifæri.