Beint í efni

Orlofs- og desemberuppbót

Hér finnur þú fjárhæðir orlofs- og desemberuppbóta samkvæmt kjarasamningum Stéttarfélags lögfræðinga við ríkið, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir 2026 og 2027.

Fjárhæðirnar miðast við fullan áunninn rétt og eru fyrir frádrátt skatta og annarra lögbundinna gjalda. Greiðsla til hvers og eins fer eftir ákvæðum viðkomandi samnings. Orlofslaun greiðast ekki til viðbótar við uppbæturnar.

Fjárhæðir 2026

  • Ríkið: Orlofsuppbót 62.000 kr. · Desemberuppbót 114.000 kr.
  • Reykjavíkurborg: Orlofsuppbót 62.000 kr. · Desemberuppbót 127.000 kr.
  • Samband íslenskra sveitarfélaga: Voruppbót 62.000 kr. · Desemberuppbót 145.000 kr.

Fjárhæðir 2027

  • Ríkið: Orlofsuppbót 64.000 kr. · Desemberuppbót 118.000 kr.
  • Reykjavíkurborg: Orlofsuppbót 64.000 kr. · Desemberuppbót 132.000 kr.
  • Samband íslenskra sveitarfélaga: Voruppbót 64.000 kr. · Desemberuppbót 150.000 kr.

Greiðsludagar

  • Ríkið: Orlofsuppbót 1. júní · Desemberuppbót 1. desember.
  • Reykjavíkurborg: Orlofsuppbót 1. júní · Desemberuppbót 1. desember.
  • Samband íslenskra sveitarfélaga: Voruppbót 1. maí · Desemberuppbót 1. desember.

Dagsetningarnar miðast við venjulega árlega greiðslu. Um uppgjör við starfslok fer samkvæmt viðkomandi samningi.

Hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga nefnast bæði vor- og desembergreiðslan persónuuppbót.

Ávinnsla og skilyrði

Réttur til uppbóta og útreikningur þeirra ráðast af viðkomandi kjarasamningi, meðal annars ákvæðum um starfshlutfall, starfstíma, fjarvistir og starfslok.

Sjá nánar í samningnum sem gildir um starf þitt:

Almennur vinnumarkaður

Um orlofs- og desemberuppbætur starfsfólks sem fellur undir samning SL og SA fer samkvæmt grein 1.5 í samningnum og ákvæðum ráðningarsamnings.

Þar er vísað til heildarkjarasamninga SA um uppbætur, með tilteknum undantekningum og heimild til annars greiðslufyrirkomulags.

Sjá samning SL og SA, grein 1.5.

Skrifstofa félagsins aðstoðar þig við að staðfesta rétt þinn og viðeigandi fjárhæðir.

Þarftu aðstoð?

Skrifstofa félagsins aðstoðar þig ef þú ert óviss um hvaða samningur gildir um þig eða hvort uppbót hafi verið rétt reiknuð.

Þú getur sent okkur fyrirspurn eða óskað eftir símtali við sérfræðing.

Eldri ár – desemberuppbót

Eldri ár – orlofsuppbót