Starfs- og endurmenntun
Örar breytingar á vinnuumhverfi og verkefnum gera símenntun stöðugt mikilvægari, fyrir starfsánægju, öryggi og umbun. Bandalag háskólamanna rekur tvo sjóði sem tengjast starfs- og endurmenntun og félagar í Stéttarfélagi lögfræðinga geta sótt í.
Hvaða sjóður á við um mig?
Starfsmenntunarsjóður BHM og Starfsþróunarsetur háskólamanna veita styrki til náms og starfsþróunar. Þótt ýmis verkefni geti verið styrkhæf hjá báðum eru sjóðirnir með ólíkar reglur um aðild, ávinnslu og styrkveitingar.
Réttindi þín ráðast meðal annars af því í hvorn sjóðinn vinnuveitandi þinn greiðir iðgjöld. Aðild að Stéttarfélagi lögfræðinga ein og sér segir því ekki til um hvaða styrki þú getur sótt.
Starfsmenntunarsjóður BHM
Starfsmenntunarsjóður styrkir sí- og endurmenntun sem tengist því starfi sem greitt er í sjóðinn vegna. Þar geta meðal annars fallið undir:
- Nám og námskeið.
- Ráðstefnur og málþing.
- Faglega skipulagðar fræðslu- og kynnisferðir innanlands og utan.
Almennt þarf að hafa verið greitt í sjóðinn vegna þín í samtals sex mánuði, þar af þrjá samfellda, til að öðlast rétt til styrks. Um undantekningar og viðhald réttinda fer samkvæmt reglum sjóðsins.
Skoða styrki og reglur Starfsmenntunarsjóðs BHM
Starfsþróunarsetur háskólamanna
Starfsþróunarsetur styrkir verkefni sem efla faglega hæfni og starfsþróun. Þar geta meðal annars fallið undir:
- Nám á háskólastigi og annað faglegt nám.
- Námskeið og ráðstefnur sem tengjast starfsþróun.
- Heildstætt nám á nýju fagsviði.
- Tungumála- og upplýsingatækninám sem styrkir þig í starfi.
Kynnisferðir og tómstundanámskeið eru ekki styrkt af setrinu.
Aðild byggist á kjarasamningi eða samkomulagi um iðgjaldagreiðslur. Á opinberum vinnumarkaði getur aðild orðið virk þegar iðgjaldagreiðslur hefjast. Á almennum vinnumarkaði þarf almennt að hafa verið greitt í setrið í samtals sex mánuði, þar af þrjá samfellda áður en verkefnið hefst. Aðild þarf að vera orðin virk áður en verkefni sem sótt er um styrk fyrir hefst.
Skoða styrki og reglur Starfsþróunarseturs
Umsóknir – skref fyrir skref
- Skoðaðu iðgjaldagreiðslur á Mínum síðum BHM. Þar getur þú séð í hvaða sjóð vinnuveitandi þinn greiðir vegna þín.
- Kynntu þér reglur viðkomandi sjóðs. Athugaðu hvort verkefnið sé styrkhæft, hvaða kostnaður er greiddur og hvaða gögn þurfa að fylgja.
- Sæktu um rafrænt á Mínum síðum BHM. Styrkfjárhæð fer eftir réttindum þínum, styrkhæfum kostnaði og reglum sjóðsins.
Starfsmenntunarsjóður
Umsókn
Starfsfólk sjóðsins metur umsóknir samkvæmt úthlutunarreglum.
Umsækjendur fá svar um afgreiðslu og upplýsingar um þau gögn sem þurfa að liggja fyrir svo hægt sé að greiða styrkinn.
Starfsþróunarsetur háskólamanna
Umsókn
Þú getur einnig kannað styrkhæfi fyrirhugaðs verkefnis með umsókn á Mínum síðum áður en þú skráir þig eða greiðir kostnað.
Spurningar um umsóknir
Þjónustuver sjóða BHM veitir upplýsingar og aðstoð vegna umsókna í Starfsmenntunarsjóð og Starfsþróunarsetur.
Sími: 595 5100
Netfang: sjodir@bhm.is
Framkvæmdastjóri Starfsþróunarseturs háskólamanna er Kristín Jónsdóttir Njarðvík - kristin@starfsthroun.is