Aðalfundur Stéttarfélags lögfræðinga 2026
Aðalfundarboð Stéttarfélags lögfræðinga 2026
Kæri félagi
Aðalfundur Stéttarfélags lögfræðinga verður haldinn 14. apríl n.k. Fundurinn hefst klukkan 15:30 og fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. Gengið er inn beint inn af götunni í VOX club salinn hægra meginn við aðalinngang hótelsins.
Dagskrá fundar:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar kynnt
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
- Ákvörðun um félagsgjöld, sbr. 5. grein - Sjá tillögu um breytt félagsgjald hér
- Lagabreytingar, sbr. 20. grein - Sjá lagabreytingatillögur hér
- Kosning formanns, sbr. 9. grein
- Kosning stjórnar, sbr. 9. grein
- Önnur mál
Fundargögn: Finna má fundagögn við hlið samsvarandi dagskrárliða og hér:
Kosning stjórnar:
Um framboð til stjórnar og varamanna í stjórn skal tilkynna skriflega til stjórnar a.m.k. þremur dögum fyrir aðalfund. Berist ekki framboð í allar trúnaðarstöður í aðdraganda aðalfundar má auglýsa eftir framboðum á fundinum. Vinsamlega sendið framboð í tölvupósti á sl@stettarfelaglogfraedinga.is. Á fundinum verður kosið í eftirfarandi embætti:
- Tvo aðalmenn í stjórn til tveggja ára.
- Tvo varamenn í stjórn til eins árs - kosið er um fyrsta varamann og annan varamann.
Virðingarfyllst,
stjórn Stéttarfélags lögfræðinga.
