Aðalfundur samþykkir lækkun félagsgjalda
Aðalfundur Stéttarfélags lögfræðinga var haldinn 14. apríl 2026 á Hilton Nordica í Reykjavík. Á fundinum voru afgreidd hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar og ársreikningur félagsins fyrir árið 2025, sem var samþykktur samhljóða.
Þá var tillaga stjórnar um lækkun félagsgjalda samþykkt og fól breytingin í sér lækkun félagsgjalda úr 0,85% af heildarlaunum í 0,75%. Breytingin tekur gildi 1. júní 2026 og eru félagsgjöld Stéttarfélags lögfræðinga þar með meðal þeirra lægstu sem tíðkast hjá stéttarfélögum á Íslandi. Lækkunin endurspeglar traustan rekstur félagsins og þann metnað að veita félagsfólki öfluga þjónustu og réttindagæslu á hagkvæmum kjörum.
Fundurinn samþykkti jafnframt breytingar á samþykktum félagsins. Meðal breytinga eru heimild félagsins til að eiga aðild að heildarsamtökum á vinnumarkaði, skýrari reglur um kjörgengi og atkvæðisrétt félagsfólks, lengri frestur til að skila tillögum um breytingar á félagsgjöldum og framboðum til stjórnar, auk breytinga sem veita stjórn aukinn sveigjanleika um samstarf við önnur félög um rekstur skrifstofu.
Ekki var kosið um formann þar sem Jóhann Gunnar Þórarinsson var kjörinn til tveggja ára á aðalfundi árið 2025. Alexandra Guðjónsdóttir og Sveinn Tjörvi Viðarsson voru sjálfkjörin í stjórn félagsins þar sem engin önnur framboð bárust.
Við kosningu varamanna bárust engin framboð innan tilskilins frests og var því óskað eftir framboðum á fundinum í samræmi við lög félagsins. Anna Ýr Johnson Hrafnsdóttir bauð sig fram sem fyrsti varamaður og Iðunn Berta Magnúsdóttir sem annar varamaður. Þar sem engin önnur framboð bárust voru þær sjálfkjörnar sem fyrsti og annar varamaður í stjórn.
Í lok fundar þakkaði formaður félagsins, Jóhann Gunnar Þórarinsson, félagsfólki fyrir þátttökuna og stjórnarfólki fyrir vel unnin störf á liðnu starfsári.
