Aðalfundur Stéttarfélags lögfræðinga var haldinn þann 29. apríl sl. þar sem m.a. var farið yfir starfsemi félagsins á nýliðnu starfsári.
Í framboði til formanns SL voru Jóhann Gunnar Þórarinsson og Katrín Pétursdóttir.
Atkvæði fóru svo að Jóhann Gunnar Þórarinsson var endurkjörinn formaður Stéttarfélags lögfræðinga með rúmlega 90% atkvæða. Aðspurður hafði hann þetta um endurkjörið að segja:
„Ég er gríðarlega þakklátur með það traust sem mér hefur verið sýnt með endurkjöri sem formaður Stéttarfélags lögfræðinga.
Á sama tíma og ég þakka mótframbjóðanda mínum fyrir málefnalega og snarpa kosningabaráttu árétta ég mikilvægi þess að reglulega sé barist um trúnaðarstöður í jafn stóru og öflugu stéttarfélagi líkt og Stéttarfélagi lögfræðinga.
Ég hlakka gríðarlega til þess að starfa áfram í þágu félagsmanna SL með nýkjörinni stjórn ásamt starfsfólki að bættum kjörum og réttindum félagsmanna þvert á alla markaði.“
Þá voru sjálfkjörin í stjórn, þau Íris Kristinsdóttir og Björn Atli Davíðsson auk þess sem Alexandra Guðjónsdóttir (1. varamaður) og Jóhann Kristinn Guðmundsson (2. varamaður) voru kjörin varamenn í stjórn.
Stjórn Stéttarfélags Lögfræðinga skipa þau Jóhann Gunnar Þórarinsson, formaður, Sveinn Tjörvi Viðarsson, Íris Kristinsdóttir, Helgi Bjartur Þorvarðarson og Björn Atli Davíðsson. Stjórnarmenn koma úr fjölbreyttum geirum og starfa m.a. hjá ríki, sveit og almenna vinnumarkaðnum.
Góð mæting var á aðalfundinn og hefur félagið birt aðalfundargerð og önnur gögn hér.
