Aðalfundur Stéttarfélags lögfræðinga
Aðalfundur Stéttarfélags lögfræðinga
Stéttarfélag lögfræðinga boðar til aðalfundar félagsins árið 2024 fimmtudaginn 18. apríl klukkan 15:00.
Fundurinn verður haldinn í fundarsal á þriðju hæð í Borgartúni 6, Reykjavík (Staðfundur)
Eftirfarandi mál skulu almennt tekin til meðferðar á aðalfundi skv. lögum félagsins:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar kynnt.
3. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
4. Ákvörðun um félagsgjöld, sbr. 5 grein.
- Stjórn Stéttarfélags lögfræðinga leggur til hækkun félagsgjalda um 0,1%
5. Lagabreytingar, sbr. 20 grein.
6. Kosning formanns, sbr. 9 grein.
7. Kosning stjórnar, sbr. 9 grein.
8. Önnur mál
Á fundinum verður kosið í eftirfarandi embætti:
Tvo aðalmenn til tveggja ára
Tvo varamenn til eins árs
Framboð til setu í stjórn félagsins skulu tilkynnt stjórn með skriflegum hætti minnst þremur dögum fyrir aðalfund. Senda skal tilkynningu um framboð á sl@stettarfelaglogfraedinga.is.
Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta og bjóða sig fram til trúnaðarstarfa fyrir félagið.
F.h. stjórnar SL
Jóhann Gunnar Þórarinsson, formaður
Aðalfundarboð