Beint í efni

BHM endurnýjar samning við Akademias

BHM hefur endurnýjað samstarfssamning sinn við Akademias fyrir árið 2023-2024

Nú hafa námskeið frá Tækninám bæst við í úrvalið sem fyrir er í rafrænum fyrirtækjaskóla Akademias. Nú má þar finna fjölda námskeiða um tæknimál, námskeið í forritum Office pakkans, námskeið í netöryggi og margt fleira. Alls er um að ræða 105 námskeið og eru fleiri væntanleg í skólann.

Félagsfólki að kostnaðarlausu

Aðgangur að fyrirtækjaskólanum er félagsfólki aðildarfélaga BHM að kostnaðarlausu.

Athugið að fyrri kóðar í fyrirtækjaskólann renna út 28. febrúar 2023 og biðjum við félagsfólk um að skrá sig að nýju til fá aðgang næsta árið, eða til loka febrúar 2024.