„Ungt fólk á bið: Námslán, húsnæði og leiðin til sjálfstæðis“
BHM og Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) standa fyrir hádegisfundi með yfirskriftina „Ungt fólk á bið: Námslán, húsnæði og leiðin til sjálfstæðis“ í Norræna húsinu 10. nóvember kl. 11:30–13:30.
Húsið opnar kl. 11:30 með léttum hádegisverði. Fundurinn hefst kl. 12:00 og verður í streymi á heimasíðu BHM og öðrum fréttamiðlum (en ekki á Teams).
Fundurinn er framhald af morgunverðarfundi BHM 27. ágúst, þar sem kynntar voru niðurstöður könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stöðu háskólamenntaðs fólks á húsnæðismarkaði. Könnunin var unnin fyrir aðildarfélög BHM ásamt Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Lyfjafræðingafélagi Íslands, Læknafélagi Íslands og Verkfræðingafélagi Íslands.
Nú verður sjónum sérstaklega beint að ungu fólki og þeim hindrunum sem það mætir á leiðinni frá námi til fjárhagslegs sjálfstæðis, meðal annars vegna námslána, vinnu með námi og stöðunnar á húsnæðismarkaði.
Skráning og nánari upplýsingar um hádegisfundinn
DAGSKRÁ
11:30 – Húsið opnar
Boðið verður upp á léttan hádegismat.
12:00 – Opnunarávarp
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
– Hagkorn BHM: Hver kemst inn og hver bíður? Ungt fólk á húsnæðismarkaði
Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingar BHM
– Hver er staða ungs fólks á húsnæðismarkaði?
Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá HMS
Pallborð: Hvernig getum við stytt leiðina til sjálfstæðis?
- Ragnar Þór Ingólfsson, félags – og húsnæðismálaráðherra
- Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti LÍS
- Sóllilja Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Vörðu
Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir.
13:30 – Samantekt og fundarslit
