Einkatímar í lífeyrisráðgjöf
Stéttarfélag Lögfræðinga og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins gerðu nýlega samning við Björn Berg Gunnarsson lífeyrisráðgjafa um ráðgjöf til félagsfólks.
Björn Berg Gunnarsson hefur 16 ára reynslu á fjármálamarkaði þar sem hann stýrði meðal annars greiningardeild og fræðslumálum Íslandsbanka. Hann hefur haldið yfir 300 fyrirlestra um lífeyrismál og er höfundur bókarinnar Peningar.
Félögin hafa nú þegar staðið fyrir tveimur fyrirlestrum, annars vegar um Lífeyrismál og starfslok fyrir 55 ára og eldri og einnig Lífeyrisráðgjöf miðuð að öllum aldri.
Í framhaldinu var félagsfólki boðið að skrá sig í einkatíma hjá Birni í boði stéttarfélagsins. Skráning fer fram með tölvupósti á sl@stettarfelaglogfraedinga.is. Þeir sem hafa nú þegar skráð sig þurfa ekki að skrá sig aftur.