Beint í efni

Fé­lags­fund­ur vegna Stofn­un­ar at­vinnu­veg­anna

Félagsfundur starfsfólks Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita


Stéttarfélag lögfræðinga tók þátt í sameiginlegum félagsfundi starfsfólks Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita þann 22. september. Á fundinum komu saman félagsmenn Dýralæknafélags Íslands, FÍN, Sameykis, Stéttarfélags lögfræðinga og Visku.

Fyrirhugaðar breytingar á skipulagi og starfsemi stofnana atvinnuvegaráðuneytisins hafa skapað ákveðna óvissu meðal starfsfólks. Á fundinum var sérstaklega rætt um framtíð starfa, starfsstöðvar, starfskjör og áunnin réttindi, auk þess sem kallað var eftir skýrari upplýsingum um framkvæmd þeirra breytinga sem boðaðar hafa verið.

Stéttarfélag lögfræðinga telur mikilvægt að starfsfólk fái skýr og bindandi svör tímanlega og áður en því er gert að taka afstöðu til framtíðar sinnar í starfi. Óvissa um grundvallaratriði sem varða starfskjör og framtíð atvinnu getur ekki orðið viðvarandi vegna tafa á undirbúningi og skorts á upplýsingagjöf.

Fundurinn sendi frá sér eftirfarandi áskorun til atvinnuvegaráðherra:

Félagsfundur starfsfólks Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita skorar á atvinnuvegaráðherra að leggja fram, án frekari tafa og eigi síðar en 1. október 2026, opinbera og skuldbindandi tímalínu um stofnun Stofnunar atvinnuveganna. Jafnframt verði starfsfólki veitt skrifleg og ótvíræð svör um framtíðarstörf, starfsstöðvar, kjör, forgangsrétt og varðveislu áunninna réttinda áður en þess er krafist að það taki ákvörðun um framtíð sína í starfi.

Fundurinn telur með öllu óásættanlegt að starfsfólk sé látið búa áfram við óvissu vegna tafa og skorts á upplýsingum.

Áskorun þessi var samþykkt á félagsfundi starfsfólks 22. september 2026, sem eftirfarandi stéttarfélög starfsfólks fyrrnefndra stofnana boðuðu:

Dýralæknafélag Íslands, FÍN, Sameyki, Stéttarfélag lögfræðinga, Viska

Um 120 félagsmenn tóku þátt í fundinum, bæði á staðnum og í fjarfundi. Umræðurnar sýndu skýrt að mikill áhugi er meðal starfsfólks á að fá fram skýr svör um næstu skref og tryggja að réttindi þess verði virt í því breytingaferli sem fram undan er.

Stéttarfélag lögfræðinga mun áfram fylgjast náið með framvindu mála og standa vörð um hagsmuni þeirra félagsmanna sem starfa hjá viðkomandi stofnunum. Félagsmenn eru hvattir til að hafa samband við félagið ef þeir hafa spurningar eða þurfa upplýsingar vegna fyrirhugaðra breytinga.