Beint í efni

Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga samþykktur

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning við Sambandið er lokið

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning milli Stéttarfélags lögfræðinga og Sambands íslenskra sveitarfélaga lauk í dag kl.12:00.

Samningurinn er með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.

Fjöldi á kjörskrá var 48 og greidd atkvæði voru 17 eða 35%. 17 voru samþykk og 0 höfnuðu samningnum.

Nýjan kjarasamning má finna hér.