Staða kjaraviðræðna 23. júlí
Ágæti félagi
Kjarasamningsviðræður hafa farið hægt af stað. Samningsgerðin er flóknari nú en oft áður þar sem opinberir laungreiðendur ganga til samninga sem ein heild og lýsa sig bundna af samningum á almennum markaði. Stéttarfélög háskólamenntaðra standa á móti þétt saman og hafa áhyggjur af kaupmáttarrýrnun háskólamenntaðra og litlum ávinningi háskólamenntunnar.
Kaupmáttarskerðingu undanfarinna ára má rekja til áherslna á hækkun lægstu launa samfara auknum kostnaði og vaxandi skattbyrði. Þeir samningar sem gerðir hafa verið að undanförnu breyta þessari stöðu ekki heldur lengja áframhaldandi kaupmáttarrýrnun.
Þegar lagt er upp með að gera langan samning eða til fjögurra ára eins og við á í þessari samningalotu þarf að vanda sérstaklega til verka. Nokkur munur er því á milli félaga hvort þau leggja þunga áherslu á samninga við ríkið eða sveitarfélögin og veltur það á stærð þeirra hópa og launalegri stöðu eftir viðsemjendum. Einungis tvö háskólafélög hafa þegar samið við ríkið á forsendum BSRB samnings en öll aðildarfélög BHM eiga enn ósamið við sveitarfélögin og borgina, þar sem langt virðist í land.
Opinberir aðilar hafa lagt áherslu á semja fyrst við félög innan ASÍ og BSRB sem bera meira upp úr býtum í þeim samningum sem gerðir voru á almennum markaði. Nú þegar þeir samningar eru í höfn má ætla að röðin sé komin að háskólafélögum. Mikil samstaða er á meðal háskólafélaga og hefur verið meira samráð en oft áður á milli stéttarfélaga innan sem utan BHM og það þvert á opinbera vinnumarkaðinn.
Höfum hugfast að þessari samningalotu mun ljúka með samningum eins og alltaf. Höfum einnig hugfast að í allri kjarabaráttu er samstaða grundvallarskilyrði til að árangur náist. Eins og ávallt leggja aðilar sig fram um að ljúka samningum sem fyrst en þó ávallt með það að marki að reyna til fulls að ná fram kjarabótum fyrir félagsfólk.
Ekki hika við að við að hafa samband við okkur með spurningar í síma 595-5143 eða með tölvupósti á tölvupóstfangið sl@stettarfelaglogfraedinga.is, hvort sem þær tengjast kjarasamningsviðræðum, einstaklingsmálum, ráðgjöf eða hvaðeina sem snýr að málefnum félagsins. Öll tækifæri til að heyra raddir félagsfólks skipta SL sköpum í kjarabaráttunni.
Baráttukveðjur,
Samninganefnd SL