Samstarf við laganema
Stéttarfélag lögfræðinga fagnar samstarfssamningum við nemendafélögin Orator, félag laganema við Háskóla Íslands og Lögréttu, félag laganema við Háskólann í Reykjavík.

Stéttarfélag lögfræðinga telur styrk fólginn í því að styðja við öflugt starf nemendafélaganna og byggja frá upphafi traust samband við félagsmenn sína. Stéttarfélag lögfræðinga býr að þeirri sérstöðu að vinna einvörðungu fyrir lögmenn, lögfræðinga og laganema. Innan félagsins liggur einstök þekking á kjörum, réttindum og þeim áskorunum sem þessi sértæki hópur kann að standa frammi fyrir á vinnumarkaði. Til að efla enn frekar þá sérstöðu leggur Stéttarfélag lögfræðinga ríka áherslu á að sameinuð stétt standi ávallt sterkust.
Stéttarfélag lögfræðinga býður laganema hjartanlega velkomna félagið, óháð atvinnu, og hvetur þá til að njóta persónulegrar og faglegrar ráðgjafar þegar kemur að ráðningarsamningum, undirbúningi fyrir starfsþróunar- og launaviðtöl, við túlkun kjarasamninga og annarra álitamála er varða réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
Við hlökkum til samstarfsins!

