Beint í efni

Sérstök athygli félaga er vakin - Vegna dóms um orlof af yfirvinnu

Vegna dóms um orlof af yfirvinnu

Kæri félagi.

Hinn 19. júní sl. féll í Landsrétti dómur sem varðar orlof af yfirvinnu ríkisstarfsmanns, sem félagið vill vekja athygli þína á. Efnisniðurstaða málsins getur haft áhrif á réttarstöðu þína þannig að tilefni sé til þess að bregðast strax við.

Málshöfðandi var starfsmaður Umbra-þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins sem taldi sig hlunnfarinn í launum þar sem honum hafði ekki verið greitt orlofsfé vegna yfirvinnutíma á grundvelli kjarasamningsreglu þar um. Hvort tveggja héraðsdómur og Landsréttur féllust á kröfur starfsmannsins um orlofsgreiðslu af yfirvinnu. Stefndi, ríkið, byggði sýknukröfu í málinu á því að orlofsfé hefði þegar verið greitt af heildarlaunum starfsmannsins og væri greitt alla mánuði ársins gegnum fasta yfirvinnu, þ.m.t. þegar starfsmaðurinn væri í orlofi og því án vinnuframlags. Í dómi héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, kom fram að ekki hefði verið samið sérstaklega um það við starfsmanninn að orlofsfé yrði ekki greitt af yfirvinnu. Vísað var til dómafordæmis Hæstaréttar í máli nr. 618/2006 og dreifibréfs fjármálaráðuneytisins nr. 2/2006 og komist að þeirri niðurstöðu að ríkið yrði að bera hallann af slíku samningsleysi. Fallist var því á kröfur starfsmannsins um að honum hafi borið að fá orlof greitt á yfirvinnulaun hans.

Telja verður ljóst af þessari niðurstöðu að starfsmenn sem ekki hafa sérstaklega samið um að fá ekki greitt til sín orlofsfé af yfirvinnu, eiga heimtingu á vangoldinni greiðslu af því tagi. Félagið varar félagsmenn sína við því að afsala sér þeirri kröfu með samningi við vinnuveitanda, þ.e. samningi um að orlofsfé greiðist ekki af yfirvinnu. Rétt er að beina sömu aðvörunum til þeirra félagsmanna sem fram til þessa hafa fengið orlof greitt af yfirvinnu, þ.e. að óbreyttu eiga hinir sömu áfram þann rétt til orlofsgreiðslna af yfirvinnu. Jafnframt skiptir ekki máli þó svo að starfsmaðurinn hafi fengið orlof af yfirvinnu greitt á meðan á orlofi hefur staðið, svo sem dómsniðurstaðan sýnir fram á.

Félagið hvetur félagsmenn sína til þess að kanna sem allra fyrst réttarstöðu sína hvað þetta varðar og beina kröfu um greiðslu orlofs af yfirvinnu til vinnuveitanda síns, hafi orlof ekki þegar verið greitt. Mikilvægt er að félagsmenn bregðist strax við í þeim tilvikum og setji kröfu sína sannalega og skriflega fram, í því skyni að forðast það að síðar verði litið á tafir á framsetningu krafna sem tómlæti af þeirra hálfu.

Virðingarfyllst,

Stéttarfélag lögfræðinga