Beint í efni

Sköpum samfélag fyrir öll

BHM býður til málþings á Kvennafrídegi þar sem rætt verður hvernig við upprætum misrétti og ofbeldi

Málþingið verður haldið á Grand hótel þann 24. október frá kl. 9:00 til 12:00. Viðburðinum verður einnig streymt inn á streymissíðu BHM. Morgunverður er frá kl. 8:30 og skráningu á málþingið má finna hér að neðan.

Dagskrá
Setning málþings

Friðrik Jónsson, formaður BHM

Misjafnt fé - ævitekjur gagnkynja hjóna

Þóra Kristín Þórsdóttir, sérfræðingur í greiningum hjá BHM.

Kynferðisleg áreitni á vinnustöðum kvenna á Íslandi - niðurstöður úr Áfallasögu kvenna

Edda Björk Þórðardóttir, lektor við Læknadeild Háskóla Íslands og klínískur sálfræðingur á LSH.

Vinnumarkaður sem leiðréttir sig ekki sjálfur -um inngildingu og heildræna nálgun

Herdís Sólborg Haraldsdóttir, eigandi IRPA ráðgjöf

Fyrra pallborð:

  • Alma Dóra Ríkarðsdóttur, viðskiptafræðingur, þáttastjórnandi hlaðvarpsins Konur í nýsköpun, sérfræðingur í jafnréttismálum og stofnandi smáforritsins HEIMA
  • Sæunn Gísladóttir, hagfræðingur, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð HA, þýðandi Ósýnilegra kvenna eftir Caroline Criado Perez

Seinna pallborð:

  • Sigrún Sigurðardóttir, dósent við HA á Heilbrigðisvísindasviði, hefur rannsakað áfallamiðaða þjónustu og sálræn áföll og ofbeldi
  • Claudia Ashanie Wilson, mannréttindalögfræðingur, annar höfundur skýrslunnar Jafnrétti innflytjenda á atvinnumarkaði
  • Sigríður Jónsdóttir, viðskiptafræðingur með diplóma í hagnýtri jafnréttisfræði og meðlimur í Tabú, hreyfingu fatlaðra kvenna.

Boð á opnun á vefsíðu um sögu rauðsokkana

Guðrún Hallgrímsdóttir, matvælaverkfræðingur og rauðsokka

Fundarstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir, varaformaður BHM.