Beint í efni

Styrkir og sjóðir félagsins

Með aðild að SL opnast möguleikar á margvíslegum styrkjum. Þar skiptir þátttaka félagsins í BHM miklu máli.

Stéttarfélag lögfræðinga er aðili að BHM og félagar okkar geta sótt um ýmsa styrki úr sjóðum sem þjónustaðir eru af BHM:

Sótt er um alla ofangreinda styrki gegnum Mínar síður BHM

Þjónustuver BHM veitir félagsmönnum aðildarfélaga upplýsingar og aðstoð vegna umsókna um styrki úr sjóðum bandalagsins, umsókna um orlofskosti o.fl.

Vísindasjóður SL

Aðild að Stéttarfélag lögfræðinga opnar á úthlutun úr vísindasjóði félagsins en sjóðnum er ætlað að vera kaupauki fyrir félaga sem greiddur er út einu sinni á ári. Á almenna vinnumarkaðinum er aðild að vísindasjóði valkvæð en greitt er fyrir alla félaga sem starfa hjá sveitarfélögum. Styrkupphæðin er miðuð við innborgun í sjóðinn á tímabilinu 1. janúar - 31. desember en vinnuveitandi greiðir 1.5% af dagvinnulaunum í vísindasjóð.

Félagar sem greitt hefur verið fyrir í vísindasjóð fá úthlutað úr sjóðnum á tímabilunu janúar til febrúar ár hvert. Félagar þurfa ekki að sækja sérstaklega um úthlutun úr vísindasjóðnum og fá senda tilkynningu í tölvupósti þegar greiðsla hefur farið fram.

Sjá nánar

Upplýsingar og aðstoð

Ef þú ert enn með spurningar sem ekki er svarað hér fyrir ofan hvetjum við þig til að hafa samband við skrifstofu Stéttarfélags lögfræðinga.

Þú getur sent inn fyrirspurn, til dæmis varðandi úthlutun úr sjóðum.

Þú getur líka stofnað formlega þjónustubeiðni sem fer sjálfkrafa inn í málaskrár kerfi okkar, til dæmis vegna umfangsmikilla eða viðkvæmra erinda

Loks má bóka símtal við sérfræðing, ef þú heldur að það eigi betur við.

Þjónustuskrifstofa félagsins er til húsa í Borgartúni 6 (sama húsi og BHM). Hún er opin alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-16. Síminn er 595 5165.