Beint í efni

Tökum höndum saman

Félagið vekur athygli á aðgerðavakningu Vinnueftirlitsins gegn kynferðislegri áreitni á vinnustöðum undir yfirskriftinni #TökumHöndumSaman.

Tilgangurinn er að hvetja vinnustaði til að grípa til aðgerða með forvörnum, fræðslu og markvissum viðbrögðum.

Nýtt fræðsluefni og verkfæri hafa verið þróuð með það að markmiði að styðja við vinnustaði landsins í að fyrirbygga og bregðast við kynferðislegri áreitni í vinnuumhverfinu. Þessu nýja efni er ætlað að styðja við bæði stjórnendur og starfsfólk.

Kynntu þér málið á vef Vinnueftirlitisins