Styrkir sem skipta máli
Ertu að velja námskeið eða ráðstefnu á þínu réttarsviði?
Hér sérðu hvernig þú kannar hvaða sjóður á við og hvaða skilyrði gilda áður en þú skráir þig.
Þegar þú vilt efla þig í starfi
Hvaða sjóður á við um mig?
Vinnuveitendur greiða í mismunandi sjóði. Sjá muninn á Starfsmenntunarsjóði og Starfsþróunarsetri.
Áður en þú greiðir námskeiðsgjaldið
Þú getur beðið Starfsþróunarsetur háskólamanna að meta hvort námskeiðið sé styrkhæft áður en þú skráir þig eða greiðir. Sendu umsókn með upplýsingum um námskeiðið á Mínum síðum BHM. Þar færðu svar frá setrinu.
Hversu hár getur styrkurinn verið?
Starfsþróunarsetrið veitir allt að 600.000 kr. á 24 mánaða tímabili við full réttindi. Tímabilið telst frá fyrstu greiðslu og hámarkið gildir um samanlagða styrki á því tímabili. Greiðsla miðast við styrkhæfan kostnað samkvæmt reikningum.
Vinnuveitandi þinn þarf að greiða til setursins og aðild þín þarf að vera virk áður en verkefnið hefst. Fullur styrkur miðast við að minnsta kosti 3.500 kr. í iðgjöld á mánuði. Lægri iðgjöld geta veitt hálfan eða engan rétt.
Finndu út hvað á við um þig
- Kannaðu í hvaða sjóði vinnuveitandi þinn greiðir vegna þín.
- Skoðaðu áunnin réttindi, fyrri styrki og viðmiðunartímabil.
- Kynntu þér skilyrði og fylgigögn áður en þú sækir um.
Á Mínum síðum BHM getur þú skoðað iðgjaldagreiðslur og sótt um styrki.
Þegar fjölskyldan stækkar
Almennt þurfa iðgjöld vegna þín að hafa borist sjóðnum í samtals sex mánuði, þar af samfellt síðustu þrjá mánuðina fyrir fæðingu. Fjárhæðirnar hér eru fyrir skatt.
Sjúkrasjóður BHM (almennur vinnumarkaður)
Allt að 300.000 kr. til hvers sjóðfélaga vegna fæðingar barns.
Fullur styrkur miðast við að heildarlaun þín síðustu þrjá mánuði fyrir umsókn hafi að meðaltali verið 500.000 kr. á mánuði eða hærri. Við lægri meðallaun greiðist hálfur styrkur. Reglur Sjúkrasjóðs BHM
Styrktarsjóður BHM (opinber vinnumarkaður)
Fullur styrkur er 200.000 kr. fyrir hvert barn.
Hafi iðgjöld vegna þín verið undir 3.976 kr. á mánuði síðustu þrjá mánuðina fyrir viðmiðunardag réttar til styrks er styrkurinn að hámarki hálfur. Reglur Styrktarsjóðs BHM
Viltu bera saman valda styrki?
Berðu saman fjárhæðir, tímabil og skilyrði valinna styrkja hjá sjóðum fyrir félagsfólk SL, VR og Sameykis.
Kynntu þér SL
Stéttarfélag lögfræðinga sameinar lögfræðinga um kjör þeirra og réttindi. Styrkjamöguleikar eru einn þáttur í því að velja félag sem hentar þér og starfsferli þínum.