Fyrsta starfið sem lögfræðingur
Fékkstu tilboð um fyrsta starfið eftir lögfræðinámið? Hér getur þú farið yfir tilboðið, undirbúið spurningar um ráðningarsamninginn og ákveðið hvaða kjör þú vilt ræða.
Ég fékk atvinnutilboð
Taktu saman það sem liggur fyrir um verkefni, laun, vinnutíma og upphaf starfsins. Skráðu það sem þig vantar að vita og spurðu hvaða kjarasamningur á við. Skoða kjarasamninga og fylgigögn SL.
Ég er að fara yfir samninginn
Berðu samningsdrögin saman við tilboðið. Endurspeglar starfslýsingin það sem þið rædduð? Eru laun, vinnutími og greiðslur fyrir yfirvinnu skýr? Merktu við það sem þú vilt fá útskýrt. Skoða leiðbeiningar SL um ráðningarsamninga.
Ég vil ræða kjörin
Veldu eitt eða tvö atriði sem skipta þig mestu. Ef þú vilt ræða launin skaltu tengja ósk þína við verkefnin sem þú tekur að þér og ábyrgðina sem þeim fylgir. Opna gátlista fyrir launaviðtalið.
Ertu í SL og vilt bera spurningu um þinn samning undir félagið? Senda SL þjónustubeiðni.
Fagfélög og samstarf við laganema
Samstarf SL við Orator og Lögréttu
Lögfræðingafélag Íslands – fræðsla og viðburðir fyrir lögfræðinga.
Lögmannafélag Íslands – upplýsingar um lögmenn og lögmannsstörf.