Beint í efni

Kjarasamningur við ríkið samþykktur

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning við ríkið er lokið

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning milli Stéttarfélags lögfræðinga og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs lauk í dag kl. 10:00.

Samningurinn er með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024.

Fjöldi á kjörskrá var 604 og greidd atkvæði voru 174 eða 29%. 161 (93%) voru samþykk og 13 (7%) höfnuðu samningnum.

Nýjan kjarasamning og nýja launatöflu má finna hér.