Beint í efni

Þjónusta við félagsfólk

Kæru félagar

Flutningar í Borgartún 27

Stéttarfélag Lögfræðinga færði nýlega starfsstöð sína í Borgartún 27. Eldri húsakynni félagsins Rúgbrauðsgerðin/Borgartún 6 leitar nú nýrra eiganda.

Hafðu áhrif á starf félagsins og taktu þátt í þjónustukönnun SL

Við flutninga í nýtt húsnæði þurfti að endurnýja ýmsan skrifstofuútbúnað og henda munum sem höfðu fylgt félaginu lengi. Ákveðið var í flutningunum að taka líka stöðuna á innra starfi félagsins.

Til þess að mæta þörfum félagsfólks sem best, viljum við hvetja þig eindregið til að taka þátt í þjónustukönnun SL. Meðfylgjandi er hlekkur á könnunina og hvetjum við eindregið alla félagsmenn til að svara henni:

Þjónustukönnun - hér

Þjónustusamningur við Björn Berg

Við leitum sífellt nýrra leiða til að bæta þjónustu við félagsfólk. Í upphafi ársins gerði félagið þjónustusamning við Björn Berg um lífeyrisráðgjöf fyrir félagsmenn. Um er að ræða einstaka þjónustu sem eingöngu stendur félagsfólki SL til boða. Hún felur í sér fræðslu og persónulega lífeyrisráðgjöf sem hefur fengið mjög góðar viðtökur.

Sjá nánar hér: Persónuleg lífeyrisráðgjöf

Önnur erindi

Eins og alltaf minnum við á að við erum til staðar fyrir félagsfólk og getur fólk haft samband símleiðis í nýja númerið okkar 415-1560 eða í gegnum netfangið sl@stettarfelaglogfraedinga.is.

Virðingarfyllst

Stjórn SL